mánudagur 12.júlí 2010
Landbúnaðar- og sveitahátíðin Sveitasæla verður haldin laugardaginn 21. ágúst næstkomandi. Sveitasæla verður haldin með
örlitlu breittu sniði í ár. Sýningin og hátíðin verður í ár á einum degi og verður meira gert úr skemmtun og
afþreygingu. Fluga hf hefur fengið til liðs við sig búgreinafélögin í skagafirði, leiðbeiningarmiðstöðinna, sveitafélagið
skagafjörð og hestamannafélagið Léttfeta. Hefðbundin atriði verða á sínum stað svo sem sveitamarkaður, handverkssýningar,
vélasýningar af einhverju tagi, hrúta- og kálfasýningar, smalahundasýning, húsdýragarður og sýningar og kynningar af ýmsu
tagi í höllinni. Mikið verður gert úr skemmtun og verður meðal annars keppt í dráttarvélaakstri undir stjórn Pardusmanna frá
Hofsósi, bændur og búalið munu spreita sig á bændafitnes, kvöldvaka verður um kvöldið að hætti skagfirskra bænda með
veglegri grillveislu söng og gleði. Hestamannafélagið Léttfeti verður með gæðingakeppni félagsins yfir daginn og verða riðin eitthvað
af úrslitunum um kvöldið á kvöldvökunni. Nánar verður sagt frá Sveitsælu á næstu dögum.
Þeir aðillar sem hafa hug á að vera með í sýningum og kynningum í og við reiðhöllinna er bent á að hafa samband við Eyþór í síma 8425240 eða á svadastadir@simnet.is. Væntalegum sýnendum er bent á að verðskrá er sögulega lág í ár ( kreppuverð ).