headerheaderheaderheaderheaderheader
Bookmark and Share

Reiðhöllin Svaðastaðir

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin annaðhvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin var fyrst haldin árið 2005,

Landbúnaðarsýningin Sveitasæla

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin annaðhvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin var fyrst haldin árið 2005, en síðast þegar hún var haldin árið 2008 sóttu um fjögur þúsund gestir sýninguna heim. Dagskráin er hlaðin fjölbreyttum atriðum fyrir bæði börn og fullorðna; búvéla- og búvörusýningar, kálfa- og hrútasýningar, húsdýragarður og margt fleira.Verðskrá fyrir Sveitasælu 2010 er mun lægri en á fyrri sýningum, þótti okkur það gáfulegt í ljósi efnahagsástands í þjóðfélaginu. Ekki verða svo kölluð sýningarkerfi eins og áður hefur verið inn í höllinni. Nú verður hver fermeter leygður á gólfi með aðgangi að rafmagni og netsambandi, einnig er hægt að fá stóla og borð leygð gegn mjög vægu gjaldi. Ef aðilar ætla að stilla vöru upp svo sem henja upp verða þeir að koma með eitthvað til þess sjálfir. Verð fyrir pr/fermetra á gólfi er 5800.- . Einnig verður boðið upp á svokallaðan sveitamarkað það eru borð sem eru 70 x 380 cm, ætlað fyrir minni söluaðilla. Verð á slíku borði er 4500.- ( án VSK ). Útisvæði er einnig boðið uppá sem sýningarsvæði eins og hefur verið áður, verð á pr/fermetra þar er 200.-. Öll verð eru án VSK.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf