
Útivistar- og sportsýningin Kraftur 2009 var í fyrsta sinn haldin í nóvember sl.
og mættu á hana um 1.200 gestir. Þar voru til sýnis jeppar, mótorhjól, snjósleðar, kajakar, byssur og bogar, ásamt tækjum og
tólum björgunarsveitanna. Ýmislegt var í boði; ökumenn véltækja reyndu með sér í kraftstælum, gestir skutu af boga o.fl.