headerheaderheaderheaderheaderheader
Bookmark and Share

Reiðhöllin Svaðastaðir

Auglýsing Vorsýning kynbótahrossa – Dómar fara fram föstudaginn 20. apríl á Sauðárkróki. Yfirlitssýing laugardaginn 21. apríl milli 10:00 og

Tekið til kostanna



Vorsýning kynbótahrossa – Dómar fara fram föstudaginn 20. apríl á Sauðárkróki. Yfirlitssýing laugardaginn 21. apríl milli 10:00 og 12:00. Skráning og nánari upplýsingar um sýninguna er að fá á Leiðbeiningamiðstöðinni – 455-7100/ee@bondi.is Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 17. apríl.

Kennslusýning reiðkennaraefna Hólaskóla – Sýningin hefst kl: 13:00 í reiðhöllinni Svaðastöðum. Þar munu reiðkennaranemar Hólaskóla útskýra fyrir áhorfendum vinnubrögð við tamningar og þjálfun. Reiðkennslusýning Hólaskóa hefur verið árlegur viðburður í tengslum við Tekið til kostanna og ávalt vakið mikla athygli og ánægu meðal gest. Sýningin er öllum opin og ekki krafsti aðgangseyris.

Sögusetur íslenska hestsins – Sögusetrið á Hólum verður opið milli 16:00 og 18:00 laugardaginn 21. apríl. Um er að ræða skemmtilega og fróðlega sýningu í Gamla hesthúsinu á Hólum.

Stórsýningin Tekið til kostanna – Sýningin mun að vanda standa saman af fjölbreyttum atriðum þar sem gæðingar vítt og breytt af landinu verða í forgrunni. Sérstakur gestur sýningarinnar verður stórknapinn Artimisia Bertus sem mætir m.a. með Óskar frá Blesastöðum. Nánar verða atriðin kynnt þegar nær dregur. Forsala aðgöngu miða er á orkusölunni Bláfelli, Sauðárkróki. Miðaverð: 2.500 kr. Sýningarsstjóri: Eyþór Einarsson 862-6627.

Tekið til kostanna dansleikur – Ball verður á Mælifelli með hljómsveitinni Spútnik að lokinni sýningu.

Sú nýbreyttni verður að valinn verður glæsilegasti hestur sýningarinnar og besta atriði sýningarinnar og er þar keppt um verðlaunafé að upphæð 25.000 kr fyrir hvort atriði. Þá verða veitt verðlaun í skeiði. Nöfn þessara þriggja verðlaunahafa verða letruð á verðlaunagrip sem varðveittur verður í Svaðastaðahöllinni og mun í framtíðinni safan nöfnum þeirra sem skara fram úr á Tekið til kostanna.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf